Nýtt sjúkrahússapótek á þessu ári

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Sjúkrahúsinu á Akureyri verða veittar 80 milljónir króna sem gerir spítalanum kleift að ljúka framkvæmdum við nýtt sjúkrahússapótek spítalans. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Heilbrigðisráðuneytisins.

Framlagið kemur til viðbótar 120 milljónum króna sem veittar voru til verkefnisins á síðasta ári. Vænst er þess að hægt verði að ljúka framkvæmdum og hefja starfsemi í nýju sjúkrahússapóteki strax á þessu ári en framkvæmdir hafa gengið vel.

Ríkar kröfur eru gerðar um aðstæður og skilyrði á sjúkrahússapótekum til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga. Þar fer til dæmis fram blöndun frumubreytandi lyfja við krabbameinum og viðlíka verkefni sem kalla á sérhæfðar og öruggar aðstæður.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að með nýju húsnæði verði aðstæður eins og best verður á kosið og í samræmi við gildandi staðla um starfsemi af þessu tagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert