Rafmagn er komið á víða á Suðurnesjum. Samkvæmt Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa Landsnets er línan komin í rekstur en þá taki við smá tími þar sem verið er að byggja kerfið upp aftur.
Steinunn segist vonast til, ef vel gengur, að það taki ekki nema kannski 15-20 mínútur þar til allir hafa fengið rafmagn á ný.