Lögreglurannsókn er að ljúka á hendur Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, fyrrverandi yfirlækni á sjúkrasviði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, en hann er grunaður í sex málum sem snúa að andlátum sjúklinga á HSS, sem ætla má að hafi verið ótímabær og borið að með saknæmum hætti.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti við mbl.is að málið verði sent til héraðssaksóknara til ákærumeðferðar síðar í þessum mánuði.
Embætti landlæknis hóf rannsókn á störfum læknisins í nóvember 2019 vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka.
Fjölskylda konu sem lést á HSS kallaði eftir því að rannsaka bæri meðferð sem móðir þeirra fékk sem manndráp en hún hafi verið send í lífslokameðferð án sýnilegrar ástæðu. Vísaði fjölskyldan í álit Landslæknis því til stuðnings.
Læknirinn var grunaður um að hafa látið 14 einstaklinga hefja ótímabæra lífslokameðferð þar sem níu höfðu látist en fimm fluttir á hjúkrunarheimili og í kjölfarið hætt slíkri meðferð.
Lögmaður hans lét hafa eftir sér um mitt síðasta ár að málið verði líklega fellt niður í kjölfar matsgerðar dómskvaddra matsmanna, sem telji að skráning læknismeðferða á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í tölvukerfum hafi verið með öðrum hætti en á öðrum sjúkrastofnununum og ekki hafi verið samræmi á milli skráningar í tölvukefum og þeirra meðferða sem hafi verið veittar.