Vatnselgur, flughálka og stífluð niðurföll

Mikið er um að vera hjá viðbragðsaðilum vegna asahláku um …
Mikið er um að vera hjá viðbragðsaðilum vegna asahláku um land allt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan minnir á að mikill vatnselgur er víða á götum á höfuðborgarsvæðinu. Ökumenn eru hvattir til að aka varlega og flýta sér hægt.

Einnig er varað sérstaklega við hálku, en flughálka er líkleg til að myndast á blautum klaka og ættu allir vegfarendur að hafa það hugfast, að því er lögreglan segir í tilkynningu.

„Skilaboð um að fólk hugi að niðurföllum og hreinsi frá þeim eru ítrekuð, ekki síst niðurföll á svölum húsa en þau eiga það til að gleymast. Rík ástæða er líka til að vara fólk við því að fara út á ís á vötnum og í fjörum. Forráðamenn eru beðnir um að brýna fyrir börnum sínum hættuna sem af því stafar,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Þá er gul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu í gildi til kl. 6 í fyrramálið vegna asahláku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert