Frysta mun að nýju víða á landinu í kvöld. Þá mun hvessa og bæta í él vestan til.
Veðurstofan spáir vestanátt á morgun, 18-23 m/s, með dimmum éljum. Úrkomulítið verður austanlands.
Frost verður víða 0 til 5 stig á morgun, en allt að 5 stiga hiti allra syðst.
Á mánudag er spáð breytilegri átt, 3-8 m/s, og björtu á köflum. Frost verður 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.