Myndband náðist af flugvél Icelandair snúast í miklum vindi og hálku á Keflavíkurflugvelli í dag. Engir farþegar voru um borð í vélinni.
„Vegna mikils vinds og hálku þá snýst hún og vængurinn fer í landganginn,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.
„Við erum núna að meta þetta, meta hversu mikið tjón hafi orðið á vélinni,“ bætir Ásdís við. Hún kveðst ekki hafa upplýsingar um hvenær atvikið átti sér stað í dag.