Rætt verður um rakaskemmdir, myglu og fúsk í nýlegum byggingum á ráðstefnu um byggingagalla í Háskólanum í Reykjavík kl. 13 í dag.
„Byggingagallar í nýlegum byggingum kosta marga milljarða á ári,“ segir dr. Ólafur H. Wallewik, prófessor við HR, sem stendur fyrir ráðstefnunni. Segir hann meginmarkmið ráðstefnunnar vera að vekja athygli á göllum sem kunna að verða á byggingu nýrra húsa, eða á viðhaldi – fúski í rauninni.
Segir Ólafur stóra vandamálið það hversu títt við eigum það til að taka inn lausnir að utan án þess að gera okkur grein fyrir að veðráttan hér á Íslandi sé af öðrum toga.
„Það er svoddan rokrass hér,“ bætir Ólafur við og biðst innilega afsökunar á orðbragðinu.
Athygli vakti á föstudag þegar rigndi inn í Fossvogsskóla, en nýlega voru unnar miklar endurbætur á skólanum sökum myglu sem þar fannst.
Spurður hvort flöt þök, á borð við þak Fossvogsskóla, eigi hreinlega við hér á landi sökum veðurs svarar Ólafur að þrátt fyrir að flöt þök hafi oft og tíðum skapað vandamál, sér í lagi þegar þau skutu hér fyrst upp kollinum, séu vönduð handtök aðalatriðið.
„Flöt þök eiga alveg að vera góð lausn ef rétt er gert,“ segir hann en áréttar að ef vel ætli að takast hér á landi skipti rannsóknarvinna, og þar langtímarannsóknir einna helst, miklu máli. Meira fjármagn mætti fara í þá vinnu, að mati Ólafs.
Rannsóknarstofa byggingariðnaðarins var lögð niður árið 2021 en um svipað leyti var kynntur nýr sjóður: Askur. Segist hann vera þakklátur stjórnvöldum að stofna nýjan sjóð, en sjóðurinn sé þó lítill. Um sé að ræða brauðmola sem margur fuglinn berjist um.
Þá segir Ólafur að mygla, eða „örveruefnasúpa“ eins og oft sé talað um í því samhengi, sé mun tíðari í íslenskum byggingum en við gerum okkur grein fyrir.
Segir hann nýlegar rannsóknir benda til þess að um 2-3% einstaklinga veikist alvarlega af þeim sökum og um 19% verði veik. Fleiri einstaklingar geti fundið fyrir einkennum, sem Alma Möller landlæknir muni útlista í erindi sínu undir heitinu „Hús og heilsa“.
„Gallinn við rakaskemmdir er að þú sérð bara toppinn á ísjakanum,“ segir Ólafur.
Að hans mati gerum við oft og tíðum bara við það sem við sjáum. Ástæðan fyrir því að mygla virðist eins tíð í skólum og raun ber vitni sé vegna þess að foreldrar passi vel upp á eftirlit með byggingum þar sem börnin þeirra dvelja.
„Það er ekki þar með sagt að það sé ekki sama ástand í skrifstofuhúsnæði eða í heimahúsum.“
Ráðstefnan fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík – stofu V101 nánar tiltekið. Þá verður ráðstefnan einnig í beinu streymi hér á mbl.is.