Lína Móey Bjarnadóttir, ekkja Johns Snorra Sigurjónssonar, segir það ekki rétt að hún hafi beðið norsku fjallgöngukonuna Kristinu Harila að klippa á taugina sem lík Johns Snorra hangir í á fjallinu K2 í Pakistan.
mbl.is greindi í gær frá viðtali norska vefritsins kk.no við Harila. Málið er nú í rannsókn á ritstjórn miðilsins eftir því sem blaðamaður þar tjáði mbl.is í morgun.
Í viðtalinu sagði Harila að íslensk kona hefði sett sig í samband við hana og beðið hana um að klippa á taugina, en Harila stefnir á að klífa fjallið.
Harila sagðist hafa ákveðið að reyna eftir megni að verða við beiðninni en benti um leið á að tiltækið væri ekki án áhættu. Hætta væri á að klifrarar neðar í fjallinu yrðu fyrir líkinu þegar það losnaði úr tauginni og rynni niður fjallshlíðina.
„Mig langar að æla yfir því hvað fólk er sjúkt þegar kemur að athygli. Ég hef aldrei talað við þessa konu eða sent önnur eins skilaboð!“ skrifar Lína Móey í Facebook-færslu.
Hún greinir þar frá að fjölskyldan hafi tekið þá ákvörðun strax í upphafi að leggja ekki líf annarra í hættu til þess að ná niður líki Johns Snorra.
Í júlí á síðasta ári var reynt að færa lík Johns Snorra en án árangurs.