Icelandair hefur aflýst öllum flugferðum frá Bandaríkjunum og Kanada til Keflavíkur vegna veðurs, auk þess sem flugfélagið hefur aflýst morgunflugi til landa víða um Evrópu, að því er kemur fram á vef Isavia. Flugferðum til Tenerife og Alicante hefur verið seinkað.
Icelandair hefur einnig aflýst öllu innanlandsflugi í dag vegna veðurs.
Fram kom í tilkynningu frá Isavia í gær að vegna veðurs gæti orðið röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli og einhverjum innanlandsflugvöllum.