Þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum við Markarfljót og til Víkur í Mýrdal hefur verið lokað vegna veðurs.
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna illviðris sem á að ganga yfir í dag og á morgun.
Líklegt þykir að færð spillist á fleiri vegum og verði þeim lokað, til dæmis á Hellisheiði, Þrengslum, við Jökulsárslón og víðar.
Eyjafjöll: Vegurinn er lokaður. Óvissustig er í gildi til kl. 11:00 á morgun. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) January 30, 2023