„Enn er veðrið að gera landsmönnum lífið leitt,“ skrifar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu vegna óveðurs sem er reiknað með síðar í dag.
Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun vegna veðurs frá klukkan 15 í dag og gildir hún í hálfan sólarhring, eða til klukkan 3 í nótt.
Lögreglan vekur athygli á appelsínugulum viðvörunum í kringum höfuðborgarsvæðið, en þar er búist við að vegir geti lokast með stuttum fyrirvara.
Vegirnir um Hellisheiði og Mosfellsheiði verða á óvissustigi, að sögn Vegagerðarinnar, eða Hellisheiðin frá klukkan 11 og Mosfellsheiðin frá klukkan 12. Það sama gildir einnig um Kjalarnes.