Páll Winkel fangelsismálastjóri telur óeðlilegt að fatlaðir einstaklingar og börn séu vistuð í einangrun eins og tíðkast hefur hérlendis.
Í nýrri skýrslu Amnesty International kemur fram að einangrunarvist í gæsluvarðhaldi sé beitt óhóflega hér á landi og að ítrekað sé brotið gegn alþjóðlegu banni gegn pyntingum og annarri ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Einangrunarvist í gæsluvarðhaldi sé meðal annars beitt gegn einstaklingum með fötlun og geðraskanir, sem og börnum. En slíkt eigi aldrei að líðast.
Páll segir að Fangelsismálastofnun muni taka mið af nokkrum ábendingum sem koma fram í skýrslunni. Hann segir stofnunina hins vegar ekki hafa ákvörðunarvald yfir það hverjir séu vistaðir í einangrun, en það hefur verið gert vegna rannsóknarhagsmuna.
„Það eru nokkrar ábendingar sem eru nýjar, og við höfum ekki fengið frá öðrum, sem við munum taka mið af. Við berum ábyrgð á því að aðbúnaður sé viðunandi og höfum fengið ábendingar er snúa m.a. að því að aðgengi að bókum og DVD-spilurum sé tryggt frá fyrstu mínútu. Við höfum og munum áfram leggja áherslu á það að þessir einstaklingar njóti þeirrar þjónustu sem er í boði, hvort sem það er þjónusta sálfræðinga eða önnur heilbrigðisþjónusta sem kostur er á,“ segir Páll í samtali við mbl.is.
Páll bendir á að starfsfólk sem sinnir gæsluvarðhaldseinangrun búi yfir mikilli reynslu í samskiptum við fólk í þessari stöðu. Hann þó telur óeðlilegt að fatlaðir einstaklingar og börn séu sett í einangrun og segir ábótavant að engar upplýsingar séu veittar um þá einstaklinga sem koma í gæsluvarðhald.
„Við höfum bent á það í mörg ár að það sé óviðunandi að einstaklingar sem glími til að mynda við andlega sjúkdóma, eða séu að öðru leyti það veikir að þeir þurfi að vera vistaðir á sjúkrastofnun, séu vistaðir í fangelsi. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða einangrun, annað gæsluvarðhald eða afplánun,“ segir Páll.