Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna i fyrrgreindum umdæmum, vegna veðurs sem fram undan er.
Appelsínugul viðvörun Veðurstofunnar tekur gildi klukkan 11 í fyrramálið á Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.
Í tilkynningu frá almannavörnum eru vegfarendur beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á því svæði þar sem veðrið er verst.
Þá segir að miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og líkur á fokstjóni eru verulegar.
Búið er að boða til samráðsfundar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra klukkan 11 í fyrramálið þar sem farið verður yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm. Einnig hefur verið ákveðið að virkja samhæfingarstöð almannavarna klukkan 10 í fyrramálið.