„Spáin er að ganga eftir og viðbragðsaðilar eru klárir á þeim stöðum þar sem spáin er verst, á Norðurlandi,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, í samtali við mbl.is.
Samráðsfundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra fór fram klukkan ellefu í dag. Farið var yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm. Þá var samhæfingarstöð almannavarna virkjuð klukkan tíu.
Á Dalvík er búið að kalla út björgunarsveit en hætta er á að leikmunir í sjónvarpsþáttunum True Detective, sem teknir eru upp í bænum, fari á kreik.
„Fólk hefur smá áhyggjur af því að það geti orðið foktjón á leikmynd og annað sem er þar,“ segir Hjördís.
Hins vegar segir Hjördís að haft hafi verið samband við framleiðendur þáttanna í gær og þeir varaðir við veðrinu. Í kjölfarið hafi þeir fært einhverja leikmuni inn eða á öruggari stað.