Ólafsvíkurlína 1 leysti út á jarðstraumsvörn um fimmleytið í dag. Ekkert rafmagnsleysi varð þó í kjölfarið.
Samkvæmt tilkynningu Landsnets er vinnuflokkur nú að undirbúa skoðun á línunni.
Gular veðurviðvaranir eru enn í gildi víða um land en óvissustigi Almannavarna var aflýst um klukkan 15.
Vegfarendur eru þó áfram beðnir að fara varlega þar sem áfram má búast við vindhviðum.