Viðburðarík vika er fram undan í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA).
Á morgun má vænta niðurstöðu í máli SA gegn Eflingu þar sem deilt er um lögmæti ótímabundins verkfalls félagsfólks Eflingar á sjö hótelum.
Ef dómurinn metur verkfallið ólögmætt verður ekkert úr verkfalli um 300 félagsmanna Eflingar á Íslandshótelum í Reykjavík sem á að hefjast á hádegi á þriðjudag.
Varakrafa stefnu SA er á þá leið að Eflingu „sé óheimilt að láta verkfall, sem boðað var með bréfi 31. janúar 2023, koma til framkvæmda þar til eftir að niðurstaða liggur fyrir í atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara“.
Á þar við verkfallsboðanir félagsmanna Eflingar sem starfa á hótelkeðjum og í vörubílaakstri og olíudreifingu. Þar er um 570 manna hóp að ræða sem greiðir nú atkvæði um verkfall. Þeirri atkvæðagreiðslu lýkur kl 18 á þriðjudag.
Því má gera ráð fyrir að Félagsdómur taki afstöðu til lögmæti miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem var lögð fram 27. janúar, þar sem að samkvæmt stefnu SA er ekki hægt að fara í verkfall fyrr en búið er að greiða atkvæði um miðlunartillöguna.
Ekki er hægt að áfrýja niðurstöðu Félagsdóms.
Þá er niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur einnig að vænta í vikunni vegna máls ríkissáttsemjara gegn Eflingu.
Ríkissáttasemjari leitaði atbeina héraðsdóms til að fá afhenta kjörskrá Eflingar vegna atkvæðagreiðslu um miðlunartillöguna.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að hún gerði ráð fyrir að áfrýja því máli ef héraðsdómur kemst að þeirri niðurstöðu að Efling þurfi að afhenda skrána.
Þriðja dómsmálið í deilunni er einnig hjá héraðsdóm en í því máli stefnir Efling ríkissáttasemjara og krefst ógildingar á miðlunartillögunni. Stefnan var lögð fyrir héraðsdóm á föstudag og óskaði stéttarfélagið eftir flýtimeðferð.
Hvorki Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, né Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari vildu tjá sig um stöðu mála við mbl.is síðdegis í dag. Þá náðist ekki í Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.