Drífa Snædal, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, hefur verið ráðin talskona Stígamóta frá og með 1. mars næstkomandi.
Hún tekur við starfinu af Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem hverfur til annarra starfa samkvæmt tilkynningu frá samtökunum.
Drífa er ekki ókunnug málaflokknum en hún stýrði Samtökum um kvennaathvarf á sínum tíma og hefur beitt sér í jafnréttismálum, gegn mansali og kynbundinni og kynferðislegri áreitni.
Haft er eftir Drífu í tilkynningunni að hún hlakki mikið til að starfa með og fyrir Stígamót og að demba sér í baráttuna með því góða fólki sem kemur að starfinu.
„Stígamót hafa haft afgerandi áhrif á samfélagsumræðuna síðustu áratugi og veitt þúsundum brotaþola aðstoð vegna afleiðinga ofbeldis. Stígamót eru hreyfiafl sem eiga fáa sinn líka.“