„Þetta er skynsamleg og rétt niðurstaða. Við áttum von á þessu,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgissonar sem er annar sakborninganna í hryðjuverkamálinu svokallaða.
Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur vísaði ákæruliðum eitt og tvö frá en þeir vísa að brotum er snúa að undirbúningi hryðjuverka.
Saksóknari mun taka sér lögbundinn kærufrest til þess að ákveða hvort úrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar.
Sveinn Andri segir því að framhaldið ráðist af því hvað ákæruvaldið geri.
Hann segir þó að um mikinn létti sé að ræða fyrir skjólstæðing sinn.
„Að óbreyttu – ef þetta helst svona – þá eru bara um minniháttar refsingar að ræða.“
Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar, tók undir orð Sveins Andra og sagði að um jákvæða niðurstöðu væri að ræða.
„Niðurstaðan er í samræmi við þær væntingar sem við höfðum,“ segir hann.
Er blaðamaður ræddi við Einar, stuttu eftir að uppkvaðningu dómsins lauk, sagði hann að í fljótu bragði virtist dómari vera sammála um óskýrleika ákærunnar og að danskt fordæmi sem var vísað til í málflutningi 26. janúar passi ekki við þetta mál.
„Það er ekki tekið undir þau sjónarmið héraðssaksóknara að fara með þessi mál með sama hætti.“
Einar hafði ekki rætt við skjólstæðing sinn en sagðist gera ráð fyrir að honum yrði mjög létt.
„Auðvitað þurfum við að sjá núna hvernig málið þróast áfram, hvort að héraðssaksóknari kæri úrskurðinn. Það kemur í ljós innan skamms.“