Umferðarljósin á gatnamótum Laugavegs/Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar eru aftur óvirk.
Þetta staðfestir umferðardeild lögreglu í samtali við mbl.is.
Í gærkvöldi var sagt frá því að ljósin væru óvirk vegna leka á heitu vatni í nágrenninu sem virðist hafa valdið skemmdum í stjórnkerfi umferðarljósanna.
Þeim var komið aftur í lag klukkan 11 í morgun en um klukkan hálf fjögur síðdegis biluðu þau á ný. Unnið er að viðgerðum.