Urður Egilsdóttir
Sakborningarnir tveir verða ekki ákærðir fyrir undirbúning hryðjuverka. Þetta úrskurðaði dómari Héraðsdóms Reykjavíkur rétt í þessu.
Munnlegur málflutningur um form ákæru á hendur Ísidóri Nathanssyni og Sindra Snæ Birgissyni fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. janúar.
Lögmenn beggja ákærðu fóru fram á frávísun á þeim brotum er snúa að undirbúningi hryðjuverka vegna óskýrs orðalags í ákæru.
Saksóknari mun taka sér lögbundinn kærufrest til þess að ákveða hvort úrskurðinum verði vísað til Landsréttar.