Mál karlmanns á þrítugsaldri sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag. Maðurinn neitar sök og hafnar bótakröfu í málinu.
Hann er ákærður fyrir að hafa sparkað í mann á fimmtugsaldri þar sem hann stóð utandyra efst í tröppum Moe‘s bar í Seljahverfi á annarri hæð þannig að hann féll niður 23 steinsteyptar tröppur.
Maðurinn hlaut höfuðkúpubrot, dreifðar blæðingar í og við heila og alvarlegan og varanlegan heilaskaða. Fer hann fram á 150 milljónir króna í miska- og skaðabætur vegna árásarinnar.
Til vara er hinn ákærði ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Þinghaldi hefur verið frestað um ótiltekinn tíma á meðan beðið er læknisvottorðs hins ákærða.