Tyrknesk yfirvöld hafa þegið boð Íslendinga um aðstoð vegna jarðskjálftanna sem riðu yfir í gærmorgun. Slysavarnafélagið Landsbjörg sendir sérfræðinga til hjálpar við leit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Þar segir að níu manna hópur verði sendur á svæðið. Er sveitin ein af 80 alþjóðlegum sveitum sem boðið hafa fram aðstoð sína eftir hamfarirnar sem riðið hafa yfir svæðið.
„Slysavarnafélagið Landsbjörg, ásamt utanríkisráðuneytinu, hóf þegar í gærmorgun undirbúning þess að senda hóp til aðstoðar, og nú liggur fyrir að níu manna hópur mun fljúga til Tyrklands með TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar eftir hádegi í dag.
Hópurinn samanstendur af sérfræðingum í aðgerðastjórnun og samhæfingu aðgerða, sem mikil þörf er á á svæðinu, en þegar þetta er skrifað hafa um 80 alþjóðlegar sveitir boðað komu sína á hamfarasvæðið.
Sólveig Þorvaldsdóttir leiðir íslenska hópinn en hún hefur afar mikla reynslu af stýringu og samhæfingu aðgerða í alþjóðlegum aðgerðum. Sólveig tók þátt í æfingu fyrir hamfarir af svipuðum toga í Tyrklandi síðasta haust.
Einnig eru í hópnum verkfræðingar, læknir og búðastjóri.
„Íslenski hópurinn fer á svæðið, undirbúinn fyrir að vera við störf í sjö daga,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.