Veronika Steinunn Magnúsdóttir,
Flugvirkjar hjá GMT ehf., sem meðal annars þjónusta Play, felldu í gær kjarasamning milli Flugvirkjafélags Íslands og GMT ehf. Kjörsókn var 100% og sögðu 13 nei (72,22%) en fjórir já (22,22%). Einn tók ekki afstöðu (5,56%). Þetta segja forsvarsmenn flugvirkja hjá GMT ehf. sem þjónusta Play.
Flugvirkjar GMT þjónusta Play, Bluebird Nordic og 20 önnur flugfélög.
Samningar eru nú lausir en árið 2018 var samið um að flugvirkjarnir fylgdu aðalkjarasamningi Flugvirkjafélags Íslands sem þá var undirritaður og flestir flugvirkjar starfa eftir. Áður en kórónuveirufaraldurinn hófst stóð til að ræða um nýjan kjarasamning flugvirkja hjá GMT. Í faraldrinum var flugvirkjum hjá fyrirtækinu aftur á móti sagt upp. Eftir að þeir voru endurráðnir vorið 2021 hefur staðið til að gera við þá nýjan kjarasamning.
Forsvarsmenn Sjómannasambandsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi funduðu hjá ríkissáttasemjara í Karphúsinu í gær. Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambandsins segir viðræðurnar á byrjunarstigi.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.