Lögreglan á Norðurlandi vestra segir að ekki hafi verið um umsátur að ræða á Sauðárkróki í kvöld og kveðst harma fréttaflutning fjölmiðla af slíku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá því að umsátur stæði yfir við íbúðarhús á Sauðárkróki og hafði þær fregnir eftir sjónarvottum.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins og að ekki sé grunur um ætlaða refsiverða háttsemi.
Eins og áður hefur verið greint frá sinnti lögreglan á Norðurlandi vestra aðgerðum við íbúðarhúsnæði á Sauðárkróki fyrr í kvöld og var sérsveitin kölluð á vettvang frá Akureyri.
„Um miðjan dag í dag, 8. febrúar, bárust lögreglunni á Norðurlandi vestra upplýsingar sem gáfu tilefni til að lögregla greip til aðgerða á Sauðárkróki til að tryggja allsherjarreglu. Við þær aðgerðir naut embættið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ er tekið fram í tilkynningunni.