Matvælaráðuneytið undirbýr útgáfu vegvísis um bætta nýtingu lífrænna efna til áburðar í landbúnaði og landgræðslu.
„Það er áskorun fyrir Ísland að verða sjálfbært um innlendan áburð en með útgáfu vegvísis er stefnt að því að [auka] hlutfall hans verulega á næstu árum með því að nýta betur þau næringarefni sem til falla í lífrænum áburðarefnum,“ segir í svari Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í skriflegu svari á Alþingi við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar um áburðarforða landsins.
Fram kemur í svarinu að stefna íslenskra stjórnvalda er að ná kolefnishlutleysi á árinu 2040 og mikilvægur hluti þess er að bæta nýtingu og meðhöndlun lífrænna áburðarefna, til dæmis búfjáráburðar, fiskeldismykju, seyru og fleiri slíkra efna.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.