„Ég er í sjálfu sér sammála Ásdísi í öllum megindráttum í þessari grein,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, um þá grein Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Í grein sinni segir Ásdís mikilvægt að endurmeta samgöngusáttmálann þar sem framkvæmdaáætlun sé nú þegar komin 50 milljarða umfram áætlun.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna sem hafa yfirumsjón með þeim framkvæmdum sem samið var um í samgöngusáttmálanum, hefur leiðrétt Ásdísi.
Hann segir framkvæmdaáætlun hafa farið sautján milljarða fram úr áætlun, ekki fimmtíu.
Almar kveðst telja að einhverju leyti eðlilegt að framkvæmdaáætlun hafi farið fram úr áætlun vegna verðbóta. Hann telur þó að rýna þurfi í einstök verkefni sáttmálans:
„Það þarf að rýna betur í einstök verkefni. Ég held að þau séu svolítið mismunandi. Sum þeirra eru eflaust ágætlega greind og þar af leiðandi hægt að treysta áætlunum, en í öðrum tilvikum er það kannski ekki þannig.“