Líkamsárás átti sér stað í dag. Árásarþoli kvaðst þekkja geranda og fór lögregla þá heim til geranda þar sem hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Tilkynnt var um tónlistarhávaða í Heimum í Reykjavík. Lögregla ræddi við húsráðendur sem lofuðu að lækka.
Þá var tilkynnt um þjófnað á rafmagnshlaupahjóli í Hlíðunum, lögregla fór á vettvang og ræddi við tjónþola en málið er í rannsókn.
Minniháttar tjón hlaust af því að eldur kviknaði í ruslageymslu í Hlíðunum og fór lögregla á vettvang ásamt slökkviliði.
Tilkynnt var um mann í annarlegu ástandi í verslun „en hann var ógnandi og æstur við starfsmann,“ segir í dagbók lögreglu. Var honum vísað út úr versluninni.
Öðrum vandræðagemsa var vísað á brott, en hann hafði verið til vandræða á hóteli í miðbænum þar sem hann var gestur.
Tilkynnt var um grunsamlegar mannaferðir í Múlunum, hlutaðeigendur fundust ekki þrátt fyrir leit.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í verslun í Skeifunni vegna þjófnaðar á snyrtivörum. Gerendur voru farnir af vettvangi en fundust stuttu seinna, skammt frá versluninni.
Tilkynnt var um foktjón en svalahandrið var að losna frá byggingu. Lögregla fór á vettvang til þess að aðstoða björgunarsveit. Svalahandriðið var tekið niður og gengið frá því á tryggilegan hátt.
Þá fór lögregla einnig á vettvang vegna tilkynningar um foktjón þar sem stór hurð var að fjúka upp.
Loks kallaði lögregla eftir aðstoð björgunarsveitar vegna stórra þakplatna sem voru að fjúka.
Tilkynnt var um tvo menn sofandi í bifreið og kváðust þeir búa í næsta húsi. Þeir sögðust hafa sofnað í bifreiðinni og „voru bara að slaka á.“
Einn ökumaður var í dag stöðvaður fyrir of hraðan akstur en hann var mældur á 115 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Rituð var vettvangsskýrsla þar sem ökumaður játaði brotið.
Annar ökumaður var handtekinn eftir að hafa ekið yfir á öfugan vegarhelming og síðan út af veginum. Ökumaður reyndist vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna pars en annað þeirra sparkaði í bifreið leigubílstjórans.
Þá óskaði annar leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem hafði ráðist á hann. Farþeginn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna gruns um líkamsárás. Málið er í rannsókn.