Félagarnir Joe Hudson og Jeames Adeane hafa í tæpa hálfa öld stundað laxveiðar á Íslandi og hugnast ekki sú ógn, sem atlantshafslaxinum stafar af laxeldi í sjókvíum. Veiðifélagarnir ræða laxveiðar á Íslandi í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þeir segja að laxveiði hafi víða hrakað verulega á undanförnum árum og rekja þróunina í Skotlandi og á Kólaskaga til marks um það.
„Laxinn er eitt glæsilegasta tákn villtrar náttúru sem fyrirfinnst – ef það er villtur lax í ánum þá er það staðfesting á heilbrigðri náttúru,“ segir Hudson. „Ef laxinn hverfur þá á náttúran í vanda.“
Adeane segir að slæm reynsla Norðmanna og Skota af laxeldi í sjókvíum ætti að gefa Íslendingum forgjöf. „Nú vitum við vel hvað þessi iðja er hættuleg lífríkinu, ekki satt? Við vitum að sjókvíaeldið getur haft afar alvarlegar afleiðingar. En það er mikill þrýstingur frá framleiðendum um að fá aðgang að fjörðunum og víða græðgi í því ferli. Ég heyri að hér á Íslandi er baráttan við eldisfyrirtækin erfið, eins og annars staðar.“
Viðtal Einars Fals Ingólfssonar við þá félaga Adeane og Hudson má lesa í heild sinni í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.