Einn hafði heppnina með sér og var með allar jókertölur réttar í réttri röð í Lottó útdrætti kvöldsins, og fær því tvær milljónir í sinn hlut. Miðahafinn er í áskrift.
Enginn var með fyrsta vinning og verður potturinn því tvöfaldur næstu helgi. Eins var enginn með annan vinning.
Þrír miðahafar voru með annan vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir á Olís á Sæbraut í Reykjavík, á lottó.is og einn er í áskrift.