Hvöss sunnanátt verður um norðvestanvert landið í nótt og fram á annað kvöld, frá Snæfellsnesi og austur að Eyjafirði, með hviðum um 35 m/s í vindstrengjum við fjöll.
Hlýtt verður í veðri, en víða verður lélegt skyggni í talsverðri eða mikilli rigningu, að því er kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.