Sylvía Rut Sigfúsdóttir, varafréttastjóri á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu vikum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Sylvía er með B.A.-gráðu í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukafag frá Háskóla Íslands og M.A.-gráðu í fjölmiðlafræði frá Kaupmannahafnarháskóla.
Hún hefur starfað á ýmsum miðlum frá árinu 2013 en undanfarið en síðast var hún varafréttastjóri á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem hún hafði umsjón með Lífinu á Vísi. Þá hefur hún einnig starfað við þáttagerð hjá miðlinum.
Starfið var auglýst í nóvember og rann umsóknarfrestur út 12. desember. Alls bárust 37 umsóknir um starfið.