Jón Hjartarson, fyrrverandi skólastjóri á Kirkjubæjarklaustri, fræðslustjóri Suðurlands, forstöðumaður skólaskrifstofu Suðurlands og framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands lést 12. febrúar, 78 ára að aldri. Frá þessu er greint í tilkynningu frá aðstandendum.
Jón fæddist 6. apríl árið 1944 á Undralandi í Kollafirði á Ströndum en fluttist 14 ára til Akureyrar. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1965 og lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1971 og síðar námi í opinberri stjórnsýslu frá Endurmenntun HÍ.
Hann sat í bæjarstjórn Árborgar fyrir Vinstri græn eitt kjörtímabil og var forseti bæjarstjórnar um skeið. Eftir Jón liggja átta bækur og margar greinar um ýmis málefni.
Eftirlifandi eiginkona hans er Áslaug Ólafsdóttir, þau eiga fjögur uppkomin börn og sjö barnabörn.