„Þetta var mjög krefjandi verkefni fyrir allt og alla,“ segir Björn J. Gunnarsson, sem kom heim í dag eftir björgunarstörf í Tyrklandi.
Hluti íslenska hópsins sem fór til Tyrklands, til að sinna björgunarstörfum eftir skjálftana sem riðu þar yfir í síðustu viku, kom heim í dag.
Hópnum var vel tekið af fjölskyldu og vinum í húsi almannavarna í Skaftahlíð um klukkan fimm síðdegis.
„Þetta hefði ekki hafst nema með miklu og góðu samstarfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar,“ segir Björn í samtali við mbl.is.
Þakkar hann einnig Icelandair fyrir sinn stuðning og slysadeild Landspítalans fyrir að hafa gefið hópnum lyf til að taka með út.
Hinn hluti íslenska hópsins mun kom heim í lok vikunnar, en hópurinn stýrir nú öllu alþjóðabjörgunarstarfi í Tyrklandi. Björn segir nokkra í hópnum hafa farið til Haítí til að sinna björgunarstörfum eftir skjálftann sem reið þar yfir árið 2010. Hann segir reynslu þeirra hafa nýst hópnum vel.
„Við erum svo heppin með það að í þessum hóp voru töluvert margir sem einnig fóru til Haítí og gátu því miðlað reynslu sinni og undirbúið þá sem ekki hafa farið,“ segir Björn og bætir við:
„Ég er búinn að vera í björgunarsveit í 26 ár en ég hef aldrei áður farið á erlenda grund sem björgunarsveitarmaður, þannig að vissu leyti var þetta mikil upplifun en með góðri þjálfun og æfingu getur maður tekist á við þetta.“