Nýr tónn og nýjar baráttuaðferðir Eflingar

Verkfall á Íslandshótelum hefur staðið yfir í viku.
Verkfall á Íslandshótelum hefur staðið yfir í viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verkföll og baráttuaðferðir Eflingar í yfirstandandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins eru um margt ólík því sem þekkt er á vinnumarkaði á síðari áratugum að sögn Sumarliða R. Ísleifssonar, dósents í sagnfræði við HÍ og sérfræðings í sögu verkalýðshreyfingarinnar.

Sé hins vegar litið 60 til 70 ár aftur í tímann megi finna ýmis dæmi um mjög hörð átök þar sem jafnvel lá við handalögmálum, að sögn Sumarliða, sem vísar þar m.a. til verkfalls Dagsbrúnar á sjötta áratugnum en þá settu verkfallsverðir upp vegatálma fyrir utan borgina, stöðvuðu flutningabíla og helltu niður mjólk.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert