„Þetta snýst um stolt þeirra“

Sólveig Anna Jónsdóttir í Karphúsinu.
Sólveig Anna Jónsdóttir í Karphúsinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði fyrir fund stéttarfélagsins með SA í Karphúsinu að ekki væri svo langt á milli viðræðuaðila hvað varðar peninga.

„Þetta snýst um stolt þeirra og hvort þeir ætli að láta það ganga fyrir hagsmunum 20 þúsund félagsmanna Eflingar. Vonandi er einhver sem getur haft vit fyrir þeim og gert þeim það ljóst að þetta snýst ekki um þeirra stolt eða þeirra hroka, heldur miklu stærri og alvarlegri hluti en það,“ sagði hún í Karphúsinu.

Ástráður Haraldsson í Karphúsinu.
Ástráður Haraldsson í Karphúsinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Spurð hvort Efling komi með eitthvað nýtt að borðinu á fundinn í dag sagði hún síðasta tilboð stéttarfélagsins enn standa.

Þau mæti til fundarins með ríkulegan samningsvilja og hann hafi alltaf verið til staðar.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert