Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins með Ástráði Haraldssyni, settum ríkissáttasemjara í deilu aðilanna, verður framhaldið núna klukkan tíu.
Ástráður boðaði fulltrúa Eflingar og SA til fundar klukkan níu í gærmorgun og fundað var fram á kvöld en hlé var gert á fundinum milli klukkan fimm og átta í gærkvöld.
Formlegar viðræður eru ekki enn hafnar. Ástráður lét hafa eftir sér í gær að fundahöldin nú snúist um að finna flöt á því hvort hægt sé að hefja formlegar viðræður um eiginlegan kjarasamning á ný.
Af hálfu Samtaka atvinnulífsins er það forsenda frekari viðræðna við Eflingu, að verkfalli verði frestað meðan á þeim stendur. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins en greint er frá því í blaðinu í gær.
Þá hafa ýmsir lagaspekúlantar blandað sér í umræðuna og þá sér í lagi um miðlunartillögu skipaðs ríkissáttasemjara en einhverjir telja hana vera orðna að kjarasamningi vegna þess að félagsfólk Eflingar hefur ekki fellt hana í atkvæðagreiðslu, sem Efling hefur hindrað framgang á, líkt og kunnugt er.
Þá verður fróðlegt að sjá hverjir mæta til fundarins í dag af hálfu deiluaðila en Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sem leitt hefur viðræðurnar fyrir hönd SA, fór veikur heim í gær. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, steig í kjölfarið inn.
Líklegt verður að teljast að fundað verði til þrautar í dag og í lok fundarins verði það gefið út hvort eiginlegum kjaraviðræðum verði framhaldið.