Nú stendur yfir samráðsþing í Hörpu um landsáætlun um innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Metskráning var á þingið og er mikill fjöldi fólks skráður til leiks. Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með beinni útsendingu af þinginu.
Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Landsáætlunin markar tímamót, enda fer nú í fyrsta sinn fram heildstæð stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks á Íslandi. Markmiðið er að fatlað fólk geti notið mannréttinda og mannfrelsis til fulls og til jafns við annað fólk.
Landsáætlunin mun ná til allra þeirra málefnasviða sem falla undir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Henni fylgja skýrt skilgreind markmið og aðgerðir til að ná markmiðunum. Við setningu markmiðanna verða settir fram mælikvarðar og framvindan verður síðan metin á árlegu samráðsþingi.
Að samráðsþinginu standa félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ásamt forsætisráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp.
Þingið hófst á ávarpi félags- og vinnumarkaðsráðherra og lýkur á undirritun samstarfsyfirlýsingar allra þátttakenda á þinginu.