Gunnhildur sigraði í fjórgangi

Sigurvegarar gærkvöldsins.
Sigurvegarar gærkvöldsins. Ljósmynd/Eiðfaxi

Gunnhildur Sveinbjarnardóttir knapi og Elva frá Auðholtshjáleigu báru sigur úr býtum þegar keppni í fjórgangi hófst í Samskipadeildinni í gærkvöldi, Equsana-fjórgangurinn var fyrsta mót vetrarins en Samskipadeildin er nýtt nafn á Áhugamannadeildinni sem var og hét og hefur notið vinsælda hin síðustu ár.

Frá þessu er greint á vefsíðu hestamannatímaritsins Eiðfaxa þar sem enn fremur segir að mikil spenna hafi verið í loftinu á móti gærkvöldsins, margir nýir keppendur í deildinni í vetur og margir einnig með nýja hesta. Var stemmningin góð á áhorfendapöllunum þetta fyrsta af fimm keppniskvöldum en næst verður keppt í slaktaumatölti 2. mars.

Lið Vagna og þjónustu stigahæst

Litlu munaði í úrslitum gærkvöldsins en Gunnhildur og Elva hlutu 7,07 í einkunn. Mjótt var á munum með þeim og Vilborgu Smáradóttur á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði sem hlaut 7,03 í einkunn en í þriðja sæti varð Kristín Ingólfsdóttir á Ásvari frá Hamrahóli með 6,90.

Stigahæst liða var lið Vagna og þjónustu en knapar þar, sem töldu til stiga, voru Vilborg, Kristín og Hermann Arason sem hafnaði í fimmta sæti í úrslitum.

Sú breyting var gerð á deildinni í vetur að allir liðsmenn mega keppa í hverri grein en þrír efstu í hverju liði gilda til stiga, einnig eru riðin B-úrslit en sigurvegari B-úrslita færist ekki upp í A-úrslit. Það var Garðar Hólm sem vann í B-úrslitum á Kná frá Korpu með einkunnina 6,43.

Niðurstöður – A-úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn


1 Gunnhildur Sveinbj. Elva frá Auðsholtshjáleigu Móálóttur, mósóttur/milli-einlitt Fákur 7,07
2 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Rauður/milli-skjótt Sindri 7,03
3 Kristín Ingólfsdóttir Ásvar frá Hamrahóli Brúnn/milli-einlitt Sörli 6,90
4 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Brúnn/milli-einlitt Geysir 6,73
5 Hermann Arason Hraunar frá Vorsabæ II Bleikur/álóttur-einlitt Sprettur 6,13
6 Hrefna Hallgrímsdóttir Þjóstur frá Hesti Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 5,93

B úrslit – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn


7 Garðar Hólm Birgisson Kná frá Korpu Brúnn/milli-einlitt Sprettur 6,43
8 Sigurbjörn Viktorsson Kóngur frá Korpu Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,23
9-10 Elín Hrönn Sigurðardóttir Svandís frá Aðalbóli 1 Rauður/milli-einlitt Geysir 6,17
9-10 Hrafnh. Arngr. Loki frá Syðra-Velli Jarpur/milli-stjörnótthringeygt/glaseygt Sprettur 6,17
11 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,07
12 Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri Brúnn/mó-tvístjörnótt Sleipnir 6,03
13 Sanne Van Hezel Þrá frá Fornusöndum Brúnn/milli-einlitt Sindri 6,00

Forkeppni – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn

1 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Rauður/milli-skjótt Sindri 6,87
2 Gunnhildur Sveinbj. Elva frá Auðsholtshjáleigu Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Fákur 6,83
3 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Brúnn/milli-einlitt Geysir 6,73
4 Hermann Arason Hraunar frá Vorsabæ II Bleikur/álóttur/einlitt Sprettur 6,70
5 Kristín Ingólfsdóttir Ásvar frá Hamrahóli Brúnn/milli-einlitt Sörli 6,60
6 Hrefna Hallgrímsdóttir Þjóstur frá Hesti Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 6,57
7 Sigurbjörn Viktorsson Kóngur frá Korpu Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,23
8-10 Hrafnh. Arngr. Loki frá Syðra-Velli Jarpur/milli-stjörnótt/hringeygt/glaseygt Sprettur 6,10
8-10 Garðar Hólm Birgisson Kná frá Korpu Brúnn/milli-einlitt Sprettur 6,10
8-10 Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri Brúnn/mó-tvístjörnótt Sleipnir 6,10
11-13 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti Brúnn/milli-einlitt Þytur 6,07
11-13 Sanne Van Hezel Þrá frá Fornusöndum Brúnn/milli-einlitt Sindri 6,07
11-13 Elín Hrönn Sigurðardóttir Svandís frá Aðalbóli 1 Rauður/milli-einlitt Geysir 6,07
14 Anna Kristín Kristinsdóttir Greifi frá Áskoti Brúnn/milli-einlitt Sprettur 6,03
15 Brynja Pála Bjarnadóttir Héla frá Hamarsheiði 2 Grár/rauðureinlitt Sprettur 5,97
16-18 Sigurður Halldórsson Radíus frá Hofsstöðum Brúnn/milli-stjörnótt Sprettur 5,93
16-18 Darri Gunnarsson Draumur frá Breiðstöðum Brúnn/gló-einlitt Sörli 5,93
16-18 Konráð Axel Gylfason Styrkur frá Stokkhólma Bleikur/álóttur-einlitt Borgfirðingur 5,93
19 Sólveig Þórarinsd. Auður frá Ak. Rauður/milli-stjarna,nös eða tvístj., leistar Fákur 5,90
20 Þorvarður Friðbjörnsson Játning frá Fornusöndum Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,87
21-23 Gunnar Tryggvason Fönix frá Brimilsvöllum Jarpur/dökk-stjörnótt Snæfellingur 5,83
21-23 Rósa Valdimarsdóttir Kopar frá Álfhólum Jarpur/dökk-einlitt Fákur 5,83
21-23 Jóhann Ólafsson Úlfur frá Hrafnagili Jarpur/rauð-einlitt Fákur 5,83
24 Inga Kristín Sigurgeirsdóttir Gutti frá Brautarholti Brúnn/milli-einlitt Sörli 5,80
25-27 Patricia Ladina Hobi Siggi Sæm frá Þingholti Jarpur/milli-einlitt Brimfaxi 5,77
25-27 Sævar Örn Eggertsson Stormfaxi frá Álfhólum Brúnn/dökk/sv.einlitt Borgfirðingur 5,77
25-27 Ríkharður Flemming Jensen Friðrik frá Traðarlandi Brúnn/milli-einlitt Sprettur 5,77
28 Sylvía Sól Magnúsdóttir Samba frá Reykjavík Rauður/milli-einlitt Brimfaxi 5,70
29-31 Halldór P. Sigurðsson Röskur frá Varmalæk 1 Rauður/milli-tvístjörnótt Þytur 5,67
29-31 Ámundi Sigurðsson Maísól frá Miklagarði Brúnn/dökk/sv.einlitt Borgfirðingur 5,67
29-31 Sverrir Einarsson Kraftur frá Votmúla 2 Rauður/milli-einlitt Sprettur 5,67
32 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Flugar frá Morastöðum Rauður/milli-stjörnótt Sörli 5,63
33 Kolbrún Grétarsdóttir Jaðrakan frá Hellnafelli Rauður/dökk/dr.einlitt Þytur 5,57
34-35 Ólöf Guðmundsdóttir Tónn frá Hestasýn Rauður/ljós-einlitt Fákur 5,50
34-35 Þórdís Sigurðardóttir Gljái frá Austurkoti Rauður/milli-einlitt Sleipnir 5,50
36 Magnús Ólason Lukka frá Eyrarbakka Rauður/milli-leistar (eingöngu) Sleipnir 5,43
37 Erlendur Guðbjörnsson Stígur frá Halldórsstöðum Jarpur/milli-einlitt Fákur 5,37
38 Helga Rósa Pálsdóttir Aspar frá Miklagarði Jarpur/milli-stjörnótt Borgfirðingur 5,33
39 Pálmi Geir Ríkharðsson Brynjar frá Syðri-Völlum Brúnn/dökk/sv. einlitt Þytur 5,27
40 Eyrún Jónasdóttir Baldur frá Kálfholti Brúnn/mó-einlitt Geysir 5,23
41 Gunnar Eyjólfsson Kjarkur frá Litlalandi Ásahreppi Brúnn/milli-tvístjörnótt Máni 5,13
42-43 Jón Steinar Konráðsson Fönix frá Silfurbergi Brúnn/milli-einlitt Brimfaxi 5,10
42-43 Erna Jökulsdóttir Leiknir frá Litlu-Brekku Brúnn/milli-einlitt Sprettur 5,10
44 Gréta Vilborg Guðmundsdóttir Ferill frá Stekkjardal Jarpur/milli-einlitt Sprettur 5,07
45 Valdimar Ómarsson Afródíta frá Álfhólum Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Sprettur 4,97
46 Ólafur Flosason Viktor frá Skúfslæk Rauður/milli-nösótt Borgfirðingur 4,93
47-48 Eyþór Jón Gíslason Barón frá Stóra-Múla Jarpur/milli-stjörnótt Borgfirðingur 4,77
47-48 Sigurður Jóhann Tyrfingsson Bogi frá Steinsholti Jarpur/rauð-einlitt Sprettur 4,77
49 Högni Sturluson Hljómur frá Hofsstöðum Grár/brúnneinlitt Máni 4,67
50 Guðmundur Ásgeir Björnsson Harpa Dama frá Gunnarsholti Rauður/milli-blesótt Fákur 4,50
51 María Júlía Rúnarsdóttir Vakandi frá Stóru-Hildisey Brúnn/milli-einlitt Sörli 4,23
52 Bragi Birgisson Kolgrímur frá Efri-Gegnishólum Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 3,23
53 Edda Hrund Hinriksdóttir Flækja frá Heimahaga Jarpur/milli-einlitt Fákur 0,00

Hér koma niðurstöður kvöldsins í einstaklings og liðakeppni.

Lið – Samtals stig

Vagnar og þjónusta 101
Stjörnublikk 84,5
Heimahagi 82
Fasteignasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna 79,5
Réttverk 60,5
Íslensk verðbréf 46,5
Trausti fasteignasala 45,5
Káragerði 39
Hvolpasveitin 38,5
Garðaþjónusta Sigurjóns 36
Mustad Autoline 31
Sveitin 22

Knapi – Stig

Gunnhildur Sveinbjarnardóttir 12
Vilborg Smáradóttir 10
Kristín Ingólfsdóttir 8
Katrín Sigurðardóttir 7
Hermann Arason 6
Hrefna Hallgrímsdóttir 5
Garðar Hólm Birgisson 4
Sigurbjörn Viktorsson 3
Hrafnhildur B. Arngrímsdóttir 1,5
Elín Hrönn Sigurðardóttir 1,5

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert