Staðfest að arðgreiðslur voru bónusgreiðslur

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.
Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.

Landsréttur staðfesti í dag ákvörðun Seðlabanka Íslands um að sekta verðbréfafyrirtækið Fossa markaði vegna útgáfu á B-hlutabréfum til valinna starfsmanna fyrirtækisins og annarra sem tengdust starfseminni. Er niðurstaðan að útgáfa bréfanna og arðgreiðslu sem hlutust af bréfunum hafi í reynd verið kaupaukagreiðslur til starfsmannanna. Áður hafði héraðsdómur komist að þeirri niðurstöðu að upphæðirnar væru einnig langt umfram þau mörk sem heimilað er samkvæmt lögum.

Fossar reyndu að fá ógilda ákvörðun Seðlabankans sem hafði sektað fyrirtækið um 10,5 milljónir vegna athæfisins.

Umfram lög um hámarks kaupauka

Í gildi eru lög þar sem lagt er bann við að kaupauki nemi hærri fjár­hæð en 25% af árs­laun­um viðkom­andi starfs­manns án kaupauka hjá fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Í ákvörðun Seðlabank­ans og dómi héraðsdóms er rakið hvernig stjórn Fossa hafi ákveðið að búa til svo­kallaðan B-hluta­bréfa­flokk til viðbót­ar við hefðbund­inn A-hluta­bréfa­flokk. Voru það aðeins starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins, auk stjórn­ar­manns og ráðgjafa, sem fengu að kaupa B-hluta­bréf. Var það ákvörðun stjórn­ar hver og hversu lengi eign­ar­hald viðkom­andi væri á bréf­un­um og tengd­ist það jafn­an komu starfs­manna til fyr­ir­tæk­is­ins eða starfs­lok­um.

Var hlut­höf­um í B-flokki óheim­ilt að fram­selja hluti sína í fé­lag­inu án samþykk­is stjórn­ar og gátu sætt inn­köll­un eft­ir vilja stjórn­ar. Hins veg­ar voru arðgreiðslur til B-hlut­hafa langt um­fram það sem hlut­haf­ar í A-flokki gátu átt von á.

Fengu 345 milljónir í arðgreiðslur en 303 milljónir í laun

Í dómi­ héraðsdóms var bent á að hlut­haf­ar í B-flokki hafi á ár­un­um 2016-2019 fengið 345 millj­ón­ir í arðgreiðslur, en á sama tíma­bili nam heild­ar­fjár­hæð B-hluta fé­lags­ins frá 21,25 millj­ón­um upp í 30,35 millj­ón­ir. Launa­greiðslur viðkom­andi starfs­manna voru á sama tíma­bili 303,3 millj­ón­ir. Hafi B-hluta­bréf­un­um á um­rædd­um árum fylgt rétt­ur til arðs upp á 44,94 – 46,84% af hagnaði síðasta rekstr­ar­árs, en hlut­fall B-hluta­bréfa­flokks­ins var á þess­um árum á bil­inu 7,5 – 23,6% af heild­ar­hluta­fé í Foss­um.

Héraðsdómur komst að þeirri niður­stöðu að rétt­arstaða hlut­hafa í B-flokki hafi verið þannig að þeir fóru ekki með at­kvæðarétt og í sam­ræmi við það ekki haft stjórn­un­ar­leg áhrif sem aðrir hlut­haf­ar hafi á starf­semi hluta­fé­laga. Arðgreiðslurn­ar hafi þá verið „ekki í nokkru sam­ræmi við það hluta­fjár­fram­lag sem þeir höfðu lagt fram sam­an­borið við hluta­fjár­fram­lag hlut­hafa í A-flokki.“

Féllst héraðsdómur, sem Landsréttur hefur nú staðfest, á rök Seðlabank­ans og seg­ir í dómi héraðsdóms að „engu skipti í þessu sam­bandi þótt téður kaupauki hafi verið klædd­ur í bún­ing arðgreiðslna af hlut­um“. Um kaupauka sé að ræða og að hann hafi farið langt um­fram fyrr­nefnd 25% mörk. Þannig námu kaupauka­greiðslur á ár­inu 2016 frá 52% upp í 76% og árið 2017 var hlut­fallið 78% upp í 89%. Árið 2018 var hlut­fallið 47% upp í 191% og árið 2019 var það 31% upp í 226%. „All­ar greiðslurn­ar fóru þar með um­fram leyfi­leg mörk.“

Þá hafði einnig verið staðfest niðurstaða Seðlabankans um að Foss­ar hafi frestað 40% kaupauka­greiðslna til þriggja ára eins og skylt er sam­kvæmt lög­um. Var dómur héraðsdóms í raun staðfesting í einu og öllu á ákvörðun Seðlabankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert