Gísli Snær skipaður forstöðumaður

Gísli Snær Erlingsson, nýr forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Gísli Snær Erlingsson, nýr forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Gísli Snær Erlingsson hefur verið skipaður forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og tekur við starfinu í apríl.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að Gísli Snær hafi starfað við leikstjórn um árabil og leikstýrði meðal annars kvikmyndunum Benjamín dúfu árið 1995 og Ikíngut árið 2000. Hann var ráðinn skólastjóri Kvikmyndaskóla Lundúna árið 2016 og lét af störfum þar á síðasta ári.

Staða forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar var auglýst í lok nóvember og rann umsóknarfrestur út þann 12. desember síðastliðinn. Umsækjendur um stöðuna voru fimmtán og var það mat þriggja manna hæfnisnefndar að Gísli væri hæfastur til að gegna embættinu. Að loknum ráðningarviðtölum Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, var það heildstætt mat að Gísli Snær stæði öðrum umsækjendum framar, segir í tilkynningunni.

Gísli tekur við starfi forstöðumanns af Laufeyju Guðjónsdóttur sem gegnt hefur starfinu í 20 ár. Skipunin er til fimm ára samkvæmt meginreglu um skipan forstöðumanna ríkisstofnana. Sigurrós Hilmarsdóttur, framleiðslustjóra Kvikmyndamiðstöðvar, hefur verið falið að gegna stöðu forstöðumanns þar til Gísli Snær mætir til starfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka