450 milljarðar fóru í mótvægisaðgerðir

Skipting fjármuna í mótvægisaðgerðum.
Skipting fjármuna í mótvægisaðgerðum.

Mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru á árunum 2020-2022 námu alls um 450 milljörðum króna, eða 4,5% af landsframleiðslu áranna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem fjármála og efnahagsráðuneytið gerði um aðgerðirnar og kynnt var í dag.

Segir meðal annars að aðgerðirnar hafi í megindráttum verið sambærilegar við þær aðgerðir sem gripið var til í nágrannaríkjunum.

Sterk staða hafi lagt grunninn

Segir að afleiðing aðgerðanna hafi m.a. verið sú að halli hins opinbera varð sá annar mesti í lýðveldissögunni. Tölulegum fjármálareglum laga um opinber fjármál var vikið til hliðar og fjármálastefnan endurskoðuð. Góð staða ríkissjóðs, sterk erlend staða þjóðarbúsins og takmörkuð skuldsetning einkaaðila voru forsendur þess að hægt var að bregðast við af krafti án þess að lánshæfi ríkissjóðs eða gengisstöðugleika stæði ógn af hallarekstri og skuldaaukningu ríkissjóðs,“ segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 

Sterk staða ríkissjóðs er sögð hafa lagt grunninn að efnahagsaðgerðum.
Sterk staða ríkissjóðs er sögð hafa lagt grunninn að efnahagsaðgerðum. mbl.is/Þórður

320 milljarðar vegna útgjalda og lægri skattheimtu

Í skýrslunni segir að bein áhrif á afkomu ríkissjóðs nemi 320 milljörðum bæði vegna útgjaldaaukningar en einnig vegna minni skattheimtu. „Aðrar aðgerðir sem komu ekki fram með beinum hætti í afkomu hins opinbera voru einnig umfangsmiklar, s.s. skattfrestanir, ríkistryggð lán, ábyrgðir og heimild til úttektar séreignarsparnaðar. Stjórnvöld forgangsröðuðu fjármunum til heilbrigðismála og stuðningi við atvinnulíf og heimili var ætlað að bregðast við sértækum vanda þeirra sem urðu fyrir mestum efnahagsáhrifum vegna faraldursins,“ segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 

Kaupmáttur jókst

„Á tímabili faraldursins jókst kaupmáttur allra tekjuhópa en mest var aukningin hjá þeim sem höfðu lægstar tekjur. Þá voru skólalokanir óvíða jafn fátíðar og hér á landi. Rannsóknir benda til þess að skólalokanir hafa neikvæð langtíma áhrif á hæfni og framtíðartekjur einstaklinga, ekki síst hjá verr stöddum og yngri nemendum.“

Nær öll fyrirtækin starfa enn 

„Nær öll fyrirtæki sem nutu stuðnings stjórnvalda starfa enn. Mótvægisaðgerðir stjórnvalda beindust í miklum mæli að rekstraraðilum (fyrirtækjum og einyrkjum) og heimilum í fjárhagsvanda. Rekstraraðilum sem urðu fyrir tekjufalli voru veittir styrkir (s.s. tekjufalls-, viðspyrnu- og lokunarstyrkir) auk þess sem þeim stóðu til boða ríkistryggð lán (s.s. stuðningslán) og skattfrestanir (s.s. frestun á staðgreiðslu af launum). Til viðbótar var ráðist í eftirspurnarörvandi aðgerðir (s.s. með ferðagjöfum, útvíkkun á endurgreiðslu VSK og aukinni opinberri fjárfestingu) og tímabundnar skattalækkanir (s.s. lækkun tryggingagjalds og niðurfelling gistináttaskatts). Enn fremur var stutt við fyrirtæki til þess að varðveita ráðningasambönd og skapa störf (s.s. hlutabótaleið og ráðningastyrkir). Nær öll fyrirtæki í rekstrarvanda sem nutu stuðnings stjórnvalda eru enn starfandi (99,3%),“ segir í tilkynningunni. 

Aðgerðirnar ná til áranna 2020-2022 þegar faraldurinn stóð sem hæst.
Aðgerðirnar ná til áranna 2020-2022 þegar faraldurinn stóð sem hæst. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Átak til að auka eftirspurn eftir vinnuafli 

„Fjárfestingar- og uppbyggingarátakið er ein umfangsmesta efnahagsaðgerð stjórnvalda og spannar sex ára tímabil. Átakið átti að auka eftirspurn eftir vinnuafli og styðja við aukna framleiðni og þannig hagvaxtargetu til lengri tíma. Með sama markmið í huga juku stjórnvöld stuðning við rannsóknir og þróun og aðgengi að menntun.

Til að varðveita kaupmátt heimila var ráðist í ýmsar aðgerðir tengdar atvinnuleysistryggingum en atvinnuleysistryggingakerfið er einn helsti sjálfvirki sveiflujafnari tekna heimila. Til að mynda var tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta lengt og bætur hækkaðar.

Þessu til viðbótar var stutt við einstaklinga í viðkvæmri stöðu (s.s. tekjulága, fatlaða og aukið fjárframlag til aðgerða tengdum geðrækt og andlegu heilbrigði) ásamt því sem greiddir voru sérstakir barnabótaaukar og úttekt séreignarsparnaðar heimiluð,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka