Hótel Jón forseti á Alliance-reit

Hótel Jón forseti mun rísa við hlið Alliance-hússins, vinstra megin …
Hótel Jón forseti mun rísa við hlið Alliance-hússins, vinstra megin á myndinni. mbl.is/sisi

Borgarráð hefur samþykkt að selja Arcusi ehf. Alliance-húsið á Grandagarði fyrir 880 milljónir króna. Með í kaupunum fylgir réttur til uppbyggingar á lóðinni. Arcus, sem er hluti af samstæðu ÞG-verktaka, áformar að reisa á lóðinni Hótel Jón forseta, íbúðarhús og koma upp saltfisksetri í Alliance-húsinu.

Reykjavíkurborg hefur gert nokkrar tilraunir til að selja húsið en það hefur ekki tekist fyrr en nú.

Nýja hótelið er litað blátt á teikningunni.
Nýja hótelið er litað blátt á teikningunni. Ljósmynd/Gláma-Kím

Grandagarður 2, Alliance-húsið, var friðað af menntamálaráðherra í febrúar 2010 og nær friðunin til ytra borðs aðalhúss. Húsið er úr steinsteypu og byggt á árunum 1924 til 1925 eftir teikningum Guðmundar H. Þorlákssonar húsameistara. Það er talið hafa mikið byggingarlistarlegt gildi sem dæmi um glæsilegt höfundarverk Guðmundar. Alliance húsið var byggt sem fiskvinnslu- og geymsluhúsnæði.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka