Lækka fasteignagjöld enn frekar vegna mistaka

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Eigendur íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði fá á næstunni sérstaka viðbótarlækkun á fasteignagjöldum miðað við áður útgefna álagningu. Verður álagningarprósenta fasteignaskatts á þessu ári lækkuð úr 0,246% í 0,223% til þess að koma til móts við hækkun fasteignamats.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.

Leiðrétta mistök

Í fyrra samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar að lækka fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði til mótvægis við hækkun fasteignamats. Lækkunin skilaði sér þó ekki að fullu til íbúa.

„Í framhaldi af útsendingu álagningar fasteignagjalda í byrjun árs kom í ljós að útreikningar reyndust ekki réttir, þannig að ... lækkun fasteignagjalda skilaði sér ekki að fullu til íbúa. Þetta verður nú leiðrétt og eigendur íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði fá að fullu að njóta lægri fasteignagjalda á þessu ári í samræmi við loforð meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar,“ segir í tilkynningunni.

„Við ákváðum að lækka álagningu fasteignagjalda í Hafnarfirði verulega til þess að koma til móts við umtalsverða hækkun fasteignamats. Í ljós hefur komið að lækkunin skilaði sér ekki að fullu við útreikning fasteignagjalda um áramót en það hefur nú verið leiðrétt svo Hafnfirðingar fái að njóta þessarar skattalækkunar eins og til stóð,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert