Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, fundaði með Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, og fleiri áhrifamönnum í hinu stríðshrjáða ríki, ásamt hópi formanna utanríkismálanefnda í Kænugarði í gær. Bjarni greindi frá því á Facebook-síðu sinni.
Tilefni fundanna var að sýna Úkraínu samstöðu ári eftir innrás Rússa.
Bjarni lýsir Selenskí sem beinskeyttum leiðtoga með þétt og sterkt handartak, leiftrandi af þeim krafti sem við höfum upplifað undanfarið ár og sameinað hefur úkraínsku þjóðina gegn ógn og hörmungum sem að þeim hefur verið beint.
„Við viljum ekki tapa landinu okkar eða fullveldinu,“ sagði forsetinn meðal annars á fundinum.
Bjarni sagði að Selenskí hafi beint til gesta sinna að það snérist ekki allt um hernaðarstuðning, heldur líka stuðning á fleiri sviðum og ekki síst um pólitíska samstöðu Evrópskra þjóðþinga. Efnahagsþvinganir gegn innrásarþjóð og sameiginlega framtíðarsýn. Hann sagði forsetann hafa sagt það styrkja úkraínsku þjóðina að finna fyrir þeirri samstöðu og yki henni baráttuþrek.
Selenskí sagðist á heimasíðu sinni vera þakklátur fyrir heimsóknina sem hann sagði vera mikilvægt merki um stuðning. Hann sagðist ánægður með þessa frábæru bandamenn sem standa vörð um sjálfstæði Úkraínu og reyna að vernda líf fólksins í landinu.
Fyrir fundinn með Selenskí forseta funduðu formennirnir með forseta úkraínska þingsins og forsætisnefnd Úkraínu, formönnum þingnefnda auk þess að hafa sótt þingfund og tekið þátt í táknrænni athöfn til stuðnings úkraínsku þjóðinni. Þá var fundað með ráðherrum varnarmála, orkumála og varaforsætisráðherra.
Bjarni flutti góðar kveðjur frá Íslandi og lýsti meðal annars djúpri samkennd og virðingu fyrir úkraínsku þjóðinni og því hugrekki og samstöðu sem hún sýni. Að Ísland stæði þétt að baki þeim og rétti þeirra til fullveldis, yfirráða yfir eigin landi og möguleikum til að móta og ráða eigin framtíð í lýðræðissamfélagi.