Saka stjórnvöld um aðgerðaleysi

Kristján Þórður Snæbjarnarson er forseti ASÍ.
Kristján Þórður Snæbjarnarson er forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Formenn aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands hafa sent frá sér ályktun í kjölfar formannafundar ASÍ, þar sem þeir fordæma „aðgerðaleysi stjórnvalda gagnvart afkomuvanda heimila og neyðarástandi í heilbrigðiskerfi og á húsnæðismarkaði“.

Segja þeir að ef ekki verði brugðist við stefni í „óefni við endurnýjun kjarasamninga eftir ár“.

„Alvarlegar aðstæður ríkja í íslensku samfélagi.  Átök á vinnumarkaði, mikil verðbólga og hnignun velferðarkerfisins eru til marks um að stjórnvöldum hefur mistekist að leggja grunn að efnahagslegum og samfélagslegum stöðugleika,“ eru upphafsorð ályktunarinnar.

„Varðstaða um sérhagsmuni“ kyndi undir óstöðugleika

Segja formennirnir að „gjaldþrot efnahags- og fjármálastefnu síðustu ríkisstjórna“ blasi við launafólki.

Verkalýðshreyfingin hafi um árabil varað við því að það sem þeir kalla „stefnu misskiptingar“ og „varðstöðu um sérhagsmuni“ kyndi undir óstöðugleika.

Eru stjórnvöld sögð hafa „mistekist að leggja grunn að efnahagslegum …
Eru stjórnvöld sögð hafa „mistekist að leggja grunn að efnahagslegum og samfélagslegum stöðugleika“. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Stöðugleiki er afleiðing ákvarðana ábyrgra stjórnmálamanna um að skapa sátt um skiptingu verðmætasköpunar í samfélaginu og standa vörð um sterkt velferðarkerfi.“

Sjaldan hafi slík varðstaða um sérhagsmuni birst landsmönnum eins skýrt og nú.

„Formannafundur Alþýðusambands Íslands krefst þess að stjórnvöld hverfi frá þeirri stefnu að hlífa auðmagni og völdum stórfyrirtækjum við eðlilegu framlagi til samfélagsins.

Óbreytt forgangsröðun og sinnuleysi gagnvart afkomuvanda fólksins í landinu er ekki lengur valkostur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert