Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusamband Íslands (ASÍ), er sannfærður um að Félagsdómur muni dæma ASÍ í vil í máli þeirra gegn Samtökum atvinnulífisins (SA).
Greint var frá því fyrr í dag að ASÍ hafi ákveðið að stefna Samtökum atvinnulífsins (SA) fyrir Félagsdómi til þess að fá boðað verkbann gegn félagsfólki Eflingar ógilt.
Spurður hvort Efling hafi ýtt á eftir því að ASÍ höfðaði mál gegn SA segir Kristján:
„Þegar þessi staða kemur upp þá kemur auðvitað félagið inn í þetta með okkur, það er auðvitað alltaf þannig. En engin pressa, það er ekkert þannig. Þetta er mál sem að þarf að fara í. Þetta er risastórt mál sem snertir grundvallaratriði fyrir launfólk á Íslandi.“
Verkbann SA tekur gildi á fimmtudag og býst Kristján því við að Félagsdómur komist að niðurstöðu á miðvikudag.
„Samkvæmt lögunum ber Félagsdómi að bregðast hratt við og koma með niðurstöðu fyrir þann tímapunkt.“
Málið verður tekið þingfest á mánudaginn. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvenær aðalmeðferð fer fram.