Úrslitastund að renna upp

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fund­ur er haf­inn í Karp­hús­inu í kjara­deilu Efl­ing­ar og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins. Ástráður Har­alds­son, sett­ur rík­is­sátta­semj­ari í deil­unni, boðaði samn­inga­nefnd­ir beggja aðila til fund­ar­ins til að ráðgast við þá um fram­hald mála og hugs­an­lega gerð miðlun­ar­til­lögu.

SA frestuðu í kjöl­farið fyr­ir­huguðu verk­banni um fjóra sól­ar­hringa en það átti að hefjast þann 2. mars næst­kom­andi. Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði vont að spá fyr­ir um fram­gang fund­ar­ins en hann sagði úr­slita­stund í kjaraviðræðunum að renna upp.

Hann sagðist ekki al­veg átta sig á hvert fyr­ir­komu­lag fund­ar­ins yrði en hann gerði þó ráð fyr­ir að rík­is­sátta­semj­ari myndi ganga á milli deiluaðila í upp­hafi. „Svo sjá­um við hvort hægt sé að spinna ein­hvern þráð hér í kvöld eða ekki.“

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar ásamt samninganefndinni.
Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir formaður Efl­ing­ar ásamt samn­inga­nefnd­inni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Þá var Hall­dór spurður hvort ár­ang­urs­laus fund­ur í kvöld þýddi að full­reynt væri að deil­an yrði leyst í Karp­hús­inu. Hall­dór taldi svo vera. „Það er al­gjör­lega full­reynt.“

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar gaf ekki mikið af sér. Hún sagðist þó myndu sitja svo lengi sem þurfa þykir í kvöld. Hún var spurð hvert fram­hald verk­fallsaðgerða Efl­ing­ar væri nú. „Við höf­um ekki frestað verk­föll­um.“

Þið eruð ekki til­bú­in til þess?

„Við höf­um ekki gert það.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert