Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun hætta að taka sýni hjá fólki með einkenni Covid-19 frá og með 1. mars 2023. Aðeins verða tekin sýni hjá fólki sem ferðast til landa þar sem sýna þarf neikvætt Covid-19 próf.
Þetta kemur fram á vef heilsugæslunnar.
Tekið er fram, að sýnataka fyrir ferðamenn muni fara fram alla virka daga í Heilsugæslunni Hlíðum. Bóka þurfi sýnatöku í gegnum vefinn travel.covid.is.
„Fólki sem er með einkenni Covid-19 getur ekki lengur mætt í sýnatöku til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að fá staðfestingu á smiti. Þeim sem vilja staðfestingu um smit er bent á að notast við heimapróf, sem hægt er að kaupa í apótekum og stórmörkuðum,“ segir í tilkynningunni.