Viðar Guðjónsson
Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar segir að hann búist við því að birgðastaða á bensínstöðvum verði komin í viðunandi horf fyrir helgi hvað almenning snerti. Eitthvað lengra sé í að birgðastaða fyrir verktaka verði komin í eðlilegt horf.
„Við byrjuðum á fullum krafti í hádeginu,“ segir Hörður en eins og fram hefur komið var verkföllum Eflingarfólks frestað fyrir hádegi vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
Olíubílstjórar hófu verkfall 15. febrúar og stóð það í skamma hríð en var frestað í nokkra daga áður en það skall á af fullum þunga 20. febrúar.
Þegar þetta er skrifað er enn ekki eldsneyti á sjö bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og í Njarðvík samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðunni Aurbjörg.is. „Það var náttúrlega lítið orðið eftir á mörgum stöðvum en það hefur verið þungi í útkeyrslunni í dag og við munum keyra á vöktum fram á kvöld,“ segir Hörður.
Hann segir að þeir sem hafi hamstrað bensín hafi nokkra mánuði áður en það skemmist. Bendir hann á það að hættulegt sé að geyma eldsneyti þar sem efnin séu vandmeðfarin vegna gufu og eldhættu.
„En í gæðalegu tilliti er í lagi með bensín í nokkra mánuði,“ segir Hörður.