Ekki heimilt að verðmerkja einungis með QR kóða

Ljósmynd/Aðsend

Neytendastofa hefur úrskurðað að Samkaup hafi broti lög vegna ófullnægjandi verðmerkinga Nettó á bókum og leikföngum. 

Í tilkynningu á vef Neytendastofu segir að stofnuninni hafi borist ábendingar um að engar verðmerkingar væru sjáanlegar á bókum og leikföngum í verslunum Nettó í Mjódd og Krossmóum og eingöngu væri notast við verðskanna eða QR kóða.

Í svari Nettó kom fram að útfærsla og uppfærsla verðmerkinga hefði breyst milli ára sem hafi tekið tíma. Núverandi fyrirkomulag væri mikil framför þar sem viðskiptavinir hafi áður þurft að fletta upp og leita í verðlistum en nú væri notast við stafrænan og umhverfisvænan hátt. Með QR kóða væri hægt að sækja verð og frekari upplýsingar um bækur gegnum vefsvæði félagsins og verðskannar væru aðgengilegir við bókaborðið til að sannreyna verð á bókum og öðrum vörum. Eftir athugasemdir Neytendastofu væru bækur einnig merktar með stafrænum hillumiða,“ segir í tilkynningunni. 

Getur komið til viðbótar

Neytendastofa benti á að meginreglan væri sú að verðmerking bæri að vera áberandi á sölustað þannig að neytandi gæti séð verð hverrar vöru með skýrum og greinargóðum hætti. 

Þá sé notkun verðskanna til verðmerkinga á eingöngu við í undantekningartilvikum sem bækur og leikföng falli ekki undir.

Stofnunin telur að notkun QR kóða uppfylli ekki skilyrði reglna um verðmerkingar. Þá segir að slíkar merkingar geti þó komið til viðbótar verðmerkingum ef seljandi vill veita nánari upplýsingar.

Var þeim fyrirmælum beint til Samkaupa að gæta þess ávallt að haga verðmerkingum í verslunum sínum í samræmi við gildandi lög og reglur,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert